10.11.1986
Neðri deild: 10. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 706 í B-deild Alþingistíðinda. (567)
103. mál, tékkar
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Í fjarveru hv. formanns nefndarinnar, 2. þm. Norðurl. v., sem er frsm. í þessu máli, vil ég flytja þessa stuttu framsöguræðu. Hér er um að ræða samkomulagsmál sem allir viðstaddir nefndarmenn skrifuðu undir. Þessi breyting sem gerð er á lögum er gerð vegna þess að nauðsynlegt var að samræma þessi lög nýsettum lögum um viðskiptabanka.
Eins og ég sagði áður, herra forseti, er fullt samkomulag um þetta mál og nefndin mælir með því að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 105.