11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (607)
59. mál, húsnæðissparnaðarreikningar
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Á síðasta þingi flutti ég frv. um breytingu á lögum um húsnæðissparnaðarreikninga sem tryggja átti húsnæðissamvinnufélaginu Búseta aðild að húsnæðissparnaðarreikningum. Við afgreiðslu málsins úr nefnd, en það var fjh.- og viðskn. sem fjallaði um málið, komu fram tvö nál. Í nál. 2. minni hl., sem skipuðu hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson og Svavar Gestsson, var lögð til breyting á því frv. sem ég flutti þess efnis að brtt. sem félmrn. lagði til og fram kom í nefndinni yrði tekin upp í frv. og frv. þannig samþykkt sem lög. Í annan stað kom fram nál. frá 1. minni hl. fjh.- og viðskn., en 1. minni hl. skipaði Páll Pétursson, og ég vil, með leyfi forseta, lesa upp kafla úr því nál. en þar stendur:
„Túlkun félmrn. og fjmrn. á lögum um húsnæðissparnaðarreikninga er ósamhljóða og meðan svo er eru lögin óvirk. Bankarnir benda á að samkvæmt lögunum sé binditími of langur til þess að húsnæðissparnaðarreikningar séu aðlaðandi fyrir innleggjendur. 1. minni hl. telur óhjákvæmilegt að lögunum um húsnæðissparnaðarreikninga verði breytt og viðkomandi ráðuneyti komi sér saman um túlkun laganna. Því telur 1. minni'hl. rétt að málið hljóti viðeigandi undirbúning í sumar og leggur til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.“
Við atkvæðagreiðslu var þessi tillaga 1. minni hl. samþykkt og málinu vísað til ríkisstjórnarinnar með þeim rökstuðningi sem fram kom í nál. á þskj. 998. Því er nú spurt á þskj. 59:
„Hafa félmrn. og fjmrn. komist að sameiginlegri niðurstöðu um rétt félagsmanna í húsnæðissamvinnufélaginu Búseta til að stofna húsnæðissparnaðarreikninga samkvæmt ákvæðum laga nr. 49 1985?“