11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 746 í B-deild Alþingistíðinda. (617)

69. mál, stjórnarskrárnefnd

Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið hjá formanni nefndarinnar hafa störf nefndarinnar legið niðri um nokkurn tíma og er mér tjáð að það sé vegna þess að beðið hefur verið eftir áliti sérfræðinga. Þau álit eru nú komin og hefur verið boðaður fundur í nefndinni.