11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 751 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

113. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla

Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Það er vissulega ánægjulegt að heyra hvað hér hefur verið rösklega að verki staðið og væntanlega kemur þessi framkvæmdaáætlun fljótlega á borð hv. þm. til umræðu á hv. Alþingi.