11.11.1986
Sameinað þing: 15. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í B-deild Alþingistíðinda. (645)

65. mál, réttur launafólks til námsleyfa

Flm. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að endurflytja hér till. til þál. um rétt launafólks til námsleyfa.

Till. var lögð fram seint á síðasta þingi og hlaut því ekki afgreiðslu. Till. er á þessa leið:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta semja frumvarp til laga um rétt launafólks til námsleyfa. Í frumvarpinu verði miðað við að launafólk geti reglulega fengið rétt til námsleyfa vegna verkmenntunar, þjálfunar, almenns náms eða endurmenntunar. Í frumvarpinu skal einnig gera ráð fyrir stofnun sjóðs í þessu skyni til þess að standa undir kostnaði við námíð sjálft og til þess að bæta upp launatap meðan á námsleyfi stendur.

Í nefndinni verði fulltrúar frá aðilum sem hlut eiga að máli, þar á meðal Menningar- og fræðslusambandi alþýðu fyrir hönd Alþýðusambands Íslands, BSRB og atvinnurekendum eða samtökum þeirra.“ Í greinargerð segir svo:

„Hér er flutt tillaga um rétt launafólks til námsleyfa. Hér er um að ræða mál sem verkalýðssamtökin hafa þegar látið til sín taka eins og fram kemur í meðfylgjandi fylgiskjölum með greinargerð þessari. Skyld mál hafa áður verið flutt á Alþingi en hafa ekki náð fram að ganga.

Nokkur verkalýðsfélög hafa þegar tryggt félagsmönnum sínum rétt á borð við þann sem hér er gerð tillaga um. Í því sambandi má nefna Einingu á Akureyri, Rafiðnaðarsamband Íslands, starfsmenn í álverinu og rétt trúnaðarmanna til einnar viku leyfis á ári hverju. Þannig liggur þegar fyrir viðurkenning á þessari almennu þörf endurmenntunar og þjálfunar af hálfu atvinnurekenda ekki síður en launafólks.

Í tillögunni er hins vegar ekki gert ráð fyrir því að eingöngu verði miðað við endurmenntun í viðkomandi grein heldur einnig almennt nám svo og félagslega þjálfun.

Í tillögunni er bent á nauðsyn þess að stofna sjóð til þess að standa undir kostnaði í þessu skyni. Það er óhjákvæmilegt vegna þess hve mörg fyrirtæki hér á landi eru smá í sniðum. Því verður ekki tryggður réttur fólks með því að ætla einstökum fyrirtækjum að ráða fram úr verkefninu. Í samþykkt miðstjórnar Alþýðusambands Íslands er gert ráð fyrir því að slíkur sjóður verði fjármagnaður annars vegar með 0,15% af öllum launum starfsmanna í þjónustu atvinnurekenda og hins vegar með framlagi úr ríkissjóði er verði jafnhátt framlagi atvinnurekenda.“

Með till. þessari og greinargerð eru birt þrjú fylgiskjöl. Þar er fyrst um að ræða samþykkt sambandsstjórnar Alþýðusambands Íslands um launað námsleyfi frá 16. okt. 1985. Síðan er birt útvarpserindi eða kaflar úr útvarpserindi eftir Tryggva Þór Aðalsteinsson, starfsmann Menningar- og fræðslusambands alþýðu, sem ber yfirskriftina Fullorðinsfræðsla frá sjónarhóli launafólks, þar sem farið er yfir þessi mál mjög ítarlega, m.a. hvernig þessum málum er háttað í öðrum löndum. Það er rakið hvernig þetta er í Bretlandi og á Norðurlöndum, svo dæmi séu nefnd. Í þriðja lagi er birt greinargerð eftir Snorra S. Konráðsson, sem einnig er starfsmaður Menningar- og fræðslusambands alþýðu sem ber yfirskriftina Starfsmenntun fullorðinna. Er þar um að ræða allítarlega úttekt á þessu máli og því hvernig það snertir einstaka starfshópa í okkar þjóðfélagi og ítarlega er fjallað um stefnumótun verkalýðshreyfingarinnar í þessum efnum.

Samþykkt sambandsstjórnar Alþýðusambands Íslands um launað námsleyfi frá 16. okt. 1985 á erindi inn í þessa umræðu. En þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„35. þing Alþýðusambands Íslands — það er fyrst rakin samþykkt Alþýðusambandsþings — samþykkir að fela miðstjórn að kjósa þriggja manna nefnd sem gerir tillögu um stefnu ASÍ varðandi rétt verkafólks til að sækja námskeið og aðra fræðslu án skerðingar launa. Nefndin skal skila áliti til miðstjórnar eigi síðar en 1. október 1985.“

Þessari tillögu fylgdi svo eftirfarandi greinargerð: „Á liðnum árum hefur þörf verkafólks fyrir fræðslu af ýmsu tagi aukist. A það ekki síst við um fræðslu er snertir störf þess, auk fræðslu um réttindi þess, skyldur og félagsmál verkalýðssamtakanna. Ein hindrun þess að fræðsla af þessu tagi geti verið jafnöflug og nauðsyn krefur er að verkafólk á ekki rétt á því að hverfa frá vinnu vegna náms nema að afar takmörkuðu leyti. Því síður getur fólk af fjárhagsástæðum leyft sér að hverfa frá vinnu kauplaust í þeim tilgangi að afla sér þekkingar og menntunar.

Á þessu er þörf breytinga þannig að réttindi launafólks í þessu sambandi verði tryggð. Í því efni er nauðsynlegt að kanna mörg atriði. Þar á meðal með hvaða hætti slík réttindi eru í öðrum löndum, hvort tengja skuli slík réttindi starfstíma fólks, hvort fræðslusjóður launafólks, sem myndaður verði með framlagi launafólks og atvinnurekenda, sé heppileg leið svo nokkur atriði séu nefnd sem nefndin athugi og móti tillögur um. Í slíkri stefnumótun þarf enn fremur að koma fram hvaða leiðir séu líklegastar til þess að settu marki í þessu efni verði náð.“

Gert er ráð fyrir í samþykkt Alþýðusambandsþings að nefnd, sem sett var niður til að fara í þetta mál, skilaði tillögum til miðstjórnar í október 1985 eins og áður getur.

Á fundi miðstjórnar Alþýðusambandsins 14. febrúar 1985 var samþykkt að skipa nefnd í þetta verkefni. Í henni áttu sæti Tryggvi Þór Aðalsteinsson, Kristín Hjálmarsdóttir og Magnús Geirsson.

Tillaga nefndarinnar varð síðan samþykkt sambandsstjórnar Alþýðusambands Íslands 16. okt. 1985 og var hún á þessa leið:

1. Allir, sem starfað hafa í sömu starfsgrein í a.m.k. tvö ár og eru orðnir 18 ára, skulu eiga rétt á námsfríi allt að fjórar vikur á hverju tveggja ára tímabili.

Ef námsfrí er tekið vegna starfsþjálfunar eða til félagslegrar menntunar á vegum verkalýðssamtakanna fellur niður fyrrgreint skilyrði um starfstíma.

2. Réttur til námsleyfis nær til almennrar menntunar, starfsþjálfunar og endurmenntunar vegna starfs, svo og félagslegrar menntunar á vegum verkalýðssamtaka, m.a. í þágu trúnaðarstarfa á vegum stéttarfélaga.

3. Tilkynna skal um töku námsleyfis með a.m.k. 6 vikna fyrirvara, þó ekki ef námsleyfi er 40 stundir eða styttra, þá nægir einnar viku fyrirvari.

4. Starfsmenn sem taka námsleyfi skulu halda áunnum réttindum sínum enda skal námsfrí metið til jafns við vinnutíma.

5. Til greiðslu launataps skal settur á stofn fræðslusjóður launafólks. Tekjur sjóðsins eru:

a. Framlag atvinnurekenda sem reiknast 0,15% af öllum launum starfsmanna í þjónustu hans sem eru í stéttarfélögum innan ASÍ.

b. Framlag ríkissjóðs sem verði jafnhátt og framlag atvinnurekenda.

6. Um fræðslusjóð þarf að setja sérstakar reglur þar sem kveðið verði á um eftirfarandi atriði m.a.:

a. Stjórn sjóðsins. Kveða þarf á um ótvíræð yfirráð verkalýðssamtakanna.

b. Fyrirkomulag greiðslna í námsfríi.

c. Skilgreina þarf nánar þá fræðslu (tegund námskeiða) sem sjóðurinn tekur til.

d. Hvað sjóðurinn greiðir annað en vinnutap. Þar er m.a. átt við kostnað vegna námskeiða, eins og kennslulaun, námsgögn, húsaleigu og stjórnun.

e. Þátttökugjald.

Þetta var samþykkt sambandsstjórnar Alþýðusambands Íslands 16. okt. 1985 um launuð námsleyfi.

Eftir að þessi samþykkt var gerð og eftir að þessi till. var flutt hafa gerst mjög veruleg tíðindi í fræðslumálum launafólks í landinu með síðustu kjarasamningum, þar sem m.a. var opnað fyrir nýja möguleika fiskverkafólks í landinu frá því sem áður hefur verið, þannig að þessi mál eru á verulegri hreyfingu. Ég held hins vegar að það væri æskilegt að Alþingi beitti sér fyrir því og ríkisvaldið að þegar í upphafi þessarar þróunar yrði sett rammalöggjöf um það hvernig að þessum málum verður staðið. Þó að það sé gott og nauðsynlegt að taka við því sem sprettur upp á akrinum sjálfum þá er hitt líka mikilvægt að Alþingi og ríkisvald geri það sem það getur til að laða fram jákvæða þróun í þessu efni.

Fyrir því, herra forseti, leyfi ég mér að vænta þess að þessari till. verði vel tekið, hún fái málefnalega umfjöllun á Alþingi og verði afgreidd á yfirstandandi þingi vegna þess að hér er um að ræða mál sem við í rauninni öll erum sammála um, að ég held. Hér er ekki um að ræða deilumál. Spurningin er ekki hvort heldur hvernig og á hvaða tíma Alþingi blandar sér í mál af þessu tagi. Ég leyfi mér að leggja til að málinu verði vísað til hv. félmn.