12.11.1986
Neðri deild: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (685)
Skýrsla um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips hf.
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Þann 20. des. 1985 samþykkti Alþingi lög um nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf. Aðalatriði þeirra laga voru að Hæstiréttur tilnefndi tvo menn í nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips sem nánar er lýst í 2. gr. laganna. Nefndin setur sér starfsreglur. Hún skal hafa aðgang að eignum Hafskips hf. eftir því sem skiptaraðanda þykir fært vegna annarra rannsóknarhagsmuna. Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands skal veita nefndinni aðstoð við upplýsingaöflun eftir því sem þörf er á. Í 4. gr. þessara laga, herra forseti, segir:
„Rannsóknarnefndin skal hraða störfum sínum og skila skýrslu til viðskrh. sem gerir Alþingi grein fyrir störfum og niðurstöðu nefndarinnar.“ — Ég endurtek: sem gerir Alþingi grein fyrir störfum og niðurstöðu nefndarinnar.
Ég rifja upp, herra forseti, að þessi lög eru samþykkt í kjölfar mikilla umræðna á Alþingi og voru niðurstaða Alþingis eftir að fram höfðu komið tillögur um að skipuð yrði sérstök rannsóknarnefnd þingsins til þess að fjalla um þetta mál. Það fer ekki milli mála að hæstv. viðskrh. er falið að gera Alþingi grein fyrir störfum og niðurstöðum nefndarinnar eins og ég hef áður sagt.
Af þessu tilefni vakti það furðu mína að heyra á skotspónum að fjölmiðlar, sjónvarpsstöðvar 1 og 2, virtust hafa fengið þessa skýrslu í hendur á undan alþm. og fluttu um þetta fréttir og allrækilega útdrætti úr þessari skýrslu. Ég hef ekki fengið glögg svör við því en þó reynt að spyrjast fyrir um það samkvæmt hvaða vinnubrögðum þessi varð niðurstaðan.
Mér hefur skilist að þessi skýrsla hafi verið tekin til umræðu í ríkisstjórn og þar afhent sem trúnaðarmál. Tilraunir mínar í gær til að kanna hvort ekki væri meiningin að formenn þingflokka eða þingflokkar fengju aðgang að þessari skýrslu báru ekki árangur. Þess vegna leyfi ég mér, herra forseti, að beina þeim fyrirspurnum til hæstv. viðskrh. og reyndar til forseta vors hverju þessi vinnubrögð sæta.
Var það samkvæmt vilja og vitund hæstv. viðskrh. að efni þessarar skýrslu var afhent sumum fjölmiðlum í gær, en eftir því sem ég best veit ekki öllum, eða er hér um að ræða leka eða trúnaðarbrot með einhverjum hætti? Var það ætlan ráðherrans að framfylgja þessu lagaákvæði um skyldu hans til að gera Alþingi grein fyrir störfum og niðurstöðum nefndarinnar með þessum hætti eða er hér um að ræða brot á þeim starfsreglum sem ríkisstjórnin hafði gert ráð fyrir?
Ég beini þessum fyrirspurnum, herra forseti, fyrst til viðskrh. og í annan stað til hæstv. forseta Nd. og bið þessa aðila báða að upplýsa hvernig á þessum vinnubrögðum stendur.