18.11.1986
Sameinað þing: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (786)
48. mál, lífeyrisréttindi fyrir alla landsmenn
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Fyrir nokkrum vikum lagði ég fram í þinginu á þskj. 48 fsp. til fjmrh. um samræmd lífeyrisréttindi fyrir alla landsmenn. Fsp. er á þessa leið:
„1. Hvenær skilar endurskoðunarnefnd lífeyriskerfis tillögum sínum um samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn og „aukinn jöfnuð og öryggi þeirra sem lífeyris njóta“?
2. Hyggst ríkisstjórnin leggja málið fyrir Alþingi í vetur?
3. Hvaða ágreiningsmál eru enn óleyst við undirbúning að frv. um samræmd lífeyrisréttindi fyrir alla landsmenn?"
Eftir að fsp. þessi var samin og henni útbýtt hér á hv. Alþingi mun átta manna lífeyrisnefndin hafa skilað áliti og hin stærri lífeyrisnefnd, sem starfað hefur alllengi, fjallað um nál. Þess vegna er í rauninni fyrst og fremst um það að ræða að nauðsynlegt er að fá svar við því hvort ríkisstjórnin hyggst leggja þetta mál fyrir Alþingi í vetur og hvaða ágreiningsmál, ef einhver eru, eru enn óleyst við undirbúning að frv. um samræmd lífeyrisréttindi fyrir alla landsmenn.