18.11.1986
Sameinað þing: 17. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (806)

148. mál, hafnamál

Fyrirspyrjandi (Þórður Skúlason):

Herra forseti. Ég vil bara benda á út af orðum hæstv. ráðh. áðan að það þarf ekki að fara út fyrir samgrn. til þess að komast að því að það eru til nægir peningar. Mér skilst að skv. fjárlagafrv. næsta árs sé áætlað að leggja 500 millj. kr. í montflugstöð á Keflavíkurflugvelli.