18.11.1986
Sameinað þing: 18. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (837)
21. mál, áhrif markaðshyggju
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Í handbók sem þm. hefur verið send frá Sambandi ísl. sveitarfélaga segir svo um mannfjölda á Suðureyri að þar séu um 418 íbúar.
Það er rétt að Ögmundur Jónasson o.fl. boðuðu til almenns fundar á Suðureyri. Þeir tilkynntu okkur í lok ræðu, þeim þm. sem þar mættu, að ætlunin væri að láta okkur skjálfa fram á haustið. Þá ætluðu þeir að boða aftur til fundar ef engar úrbætur hefðu verið gerðar. Til þess fundar hefur ekki verið boðað. Ég hygg að hver sem skoðar það af nokkurri sanngirni viti að m.a. á Suðureyri hafa hlutir verið að snúast til betri vegar í erfiðri stöðu.
Ég tel aftur á móti að hv. 3. þm. Reykv. geri sér illa grein fyrir því hver sé ástæðan fyrir langlífi þessarar þjóðar. Ég hef ekki neitt í höndunum sem segir að það séu fúkkalyfin. Ég veit ekki betur en þeir hafi fúkkalyf á Norðurlöndum líka, Svíarnir, Danirnir og Norðmenn. Kannske gefa þeir búfé of mikið af fúkkalyfjum. Standa læknavísindin framar á Íslandi en annars staðar í heiminum? Ja, það eru stórtíðindi ef svo er. Ég segi það bara. Það eru stórtíðindi. Ég ætla ekki að gera lítið úr íslenskum læknum. Ég veit að það eru hinir hæfustu menn.
En sannleikurinn er sá, hvort sem hv. þm. vill viðurkenna það eða kýs að stinga höfðinu í sandinn, að það hefur tekist að skapa á Íslandi það velferðarþjóðfélag sem hefur skilað þessum árangri. Þó að menn séu utan stjórnar þýðir ekki að fyllast slíkri heilagri reiði í garð þeirra sem stjórna landinu að það verði nánast myrkur um hábjartan dag eins og hjá Axlar-Birni forðum og þeim finnist að allt sé að farast.
Ég held að sú hugsun sem kemur fram um nýtingu sjúkrastofnana, það megi vissulega um það deila eins og fleira, hvort það er rétt stefna í heilbrigðismálum að leggja mest upp úr sjúkrarúmunum eða fara í fyrirbyggjandi aðgerðir í miklu ríkari mæli en gert er. Og ég er sannfærður um það að þróunin verður sú í framtíðinni að það verður lögð rík áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir en ekki hitt að beina umræðunni inn á þá braut hvort sjúkrarúmin eigi að vera nýtt til hins ýtrasta. En ef málflutningurinn er af þeirri nákvæmni, sem hér kom fram, að það er sagt að í sveitarfélagi búi 350 manns, þegar hagskýrslur tala um 418, þá er náttúrlega ekki skrýtið þó útkoman verði dálítið undarleg.