24.11.1986
Efri deild: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1073 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

Sveinn Jónsson verkfr. Reyðarf. fyrir HS 2 AL

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 20. nóv. 1986:

„Þar sem ég að læknisráði get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Austurlandskjördæmi, Sveinn Jónsson verkfræðingur, Reyðarfirði, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.

Helgi Seljan,

2. þm. Austurl.

Sveinn Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og því hefur kjörbréf hans verið rannsakað. Er hann nú boðinn velkominn til starfa.

Forseti tók bæði dagskrármálin út af dagskrá.