25.11.1986
Sameinað þing: 21. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1146 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
183. mál, aðstoð við hitaveitur
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Fyrir hönd flm. till., og ég vona að ég mæli fyrir hönd þeirra allra, sé ég ástæðu til þess að þakka hæstv. iðnrh. góðar undirtektir og sérstaklega þau orð hans að hér væri á ferðinni vandamál þjóðarinnar allrar.
Hins vegar þótti mér undarlegt hvernig hv. þm. Halldór Blöndal, sem hér kom í stólinn, brást við þessari till. Orðrétt sagði hann að till. væri á misskilningi byggð. Það verður fróðlegt fyrir kjósendur hv. þm. á Akureyri, aðþrengda af hitakostnaði, að fá fréttir af þessum ummælum hans. Ég held að það veiti ekkert af að koma þeim rækilega á framfæri.
Hv. þm. Halldór Blöndal hefur greinilega ekki hlustað á þau orð sem ég lét hér falla þegar ég gerði grein fyrir till. þar sem ég sagði að öllum flm. væri ljóst að ríkisstjórnin hefði fullan hug á að leysa vanda þeirra byggðarlaga sem um ræðir og að við vissum einnig um nefndarskipan hæstv. ríkisstjórnar. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að sú nefnd sem nú hefur verið skipuð hefði gott af því að vita vilja Alþingis og hún hafi gott af því að vita að þm. eru ákveðnir í því, ásamt með ríkisstjórninni þrátt fyrir orð hv. þm. Halldórs Blöndals, að leysa þessi mál.
Ég verð hins vegar að segja að það hafa fyrr verið skipaðar embættismannanefndir til að gera tillögur um lagfæringar á ýmsum málum og það hefur þrátt fyrir tillögugerð þeirra lítið gerst í málum. Þess vegna töldum við flm. þessarar till. að það bæri brýna nauðsyn til að flytja hana hér á þingi, ræða málið efnislega hér á þingi. Þessi tillöguflutningur var í fullu samræmi og í samráði við forustumenn hitaveitna á viðkomandi stöðum. Mönnum má vera alveg ljóst að hér er ekki flanað að neinu.
Herra forseti. Ég legg það í hendur virðulegs forseta að ákveða hvort þessari till. verði vísað til allshn. eða atvmn.