03.12.1987
Sameinað þing: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)

Skrifleg svör við fyrirspurnum

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því að ég bar hér fram fsp. 10. okt. sl. um ráðningar kennara og leiðbeinenda við skóla landsins. Ég vil lýsa furðu minni á þeim drætti sem verður á því að ég fái svör við fsp. og ég vil beina því til forseta að hann ýti á eftir að svar berist.