07.12.1987
Neðri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (1120)

40. mál, Útflutningsráð Íslands

Páll Pétursson:

Herra forseti. Með því að fulltrúar í fjvn. hafa setið á fundi en eru nú rétt ókomnir til þessa fundar og ég hef gert ráðstafanir til þess að fá þá hingað í salinn, þeir hljóta að birtast hér innan örfárra mínútna, er ég alfarið á móti því að ganga ekki frá þessu við atkvæðagreiðslu um málið.