07.12.1987
Neðri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)

40. mál, Útflutningsráð Íslands

Forseti (Jón Kristjánsson):

Það skal tekið fram að forseti var búinn að aðvara fjárveitinganefndarmenn um atkvæðagreiðslu og þeir eru væntanlegir hingað. Við munum freista þess, enda er klukkan ekki orðin fimm enn, að ljúka atkvæðagreiðslu áður en fundi er slitið og munum við hinkra í eina mínútu a.m.k. eftir því að þeir gangi í salinn.