08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)
40. mál, Útflutningsráð Íslands
Forseti (Jón Kristjánsson):
Ég vil upplýsa það, af því að beint var til mín fsp. um fjarvistir utanrrh., að hann er ekki væntanlegur hingað, a.m.k. þessa viku. Hér er fyrir hann varamaður inni á þingi eins og stendur. Hann mun því ekki geta svarað fyrir þetta mál á næstunni. Hins vegar vil ég benda á það að þetta mál er í fyrri deild og það er að sjálfsögðu ekki útrætt hér í hv. Alþingi.