08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1611 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)

180. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt.á l. nr. 46/1987, um gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda. Þegar lögin um staðgreiðslu opinberra gjalda voru samþykkt á síðasta þingi var í 42. gr. laganna gert ráð fyrir því að lögin kæmu ekki til framkvæmda fyrr en Alþingi hefði sett sérstök lög um gildistöku þeirra. Hér var um nýmæli að ræða í íslenskri löggjöf, en þessi háttur hefur tíðkast nokkuð með grannþjóðum vorum.

Frv. það sem hér er til umræðu fjallar um breytingu á l. nr. 46/1987, um gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda. Í gildistökulögunum frá því í vor eru auk ákvæða um sjálfa gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda og ákvæða tengd þeirri gildistöku í lögunum reglur um það hvernig háttað skuli skattlagningu á tekjur manna á núverandi tekjuári, þ.e. árinu áður en staðgreiðsla tekur gildi.

Samkvæmt 5. gr. gildistökulaganna skulu svokallaðar yfirfærðar tekjur, sem taldar verða fram sem tekjur ársins 1987, skattlagðar við álagningu, en skattur af þeim ekki felldur niður. Yfirfærðar tekjur teljast þær tekjur sem komnar eru til vegna breytingar á uppgjörsaðferð eða á annan hátt eru færðar frá fyrri eða síðari árum til ársins 1987.

Þessu til skýringar mætti nefna dæmi sem upp kynni að koma sem gæti verið í því fólgið að einstaklingar með rekstur á sínum snærum kynnu að búa sér til tekjur á árinu 1987, hugsanlega í því formi að greiða sér fyrirframlaun sem væru síðan skuldfærð hjá fyrirtæki en viðkomandi einstaklingar síðan tekjulausir eftir að staðgreiðsla tekur gildi.

Í þessu frv. er lagt til að ótvírætt verði kveðið á um það að ef þessar tekjur eru ekki eða hafa ekki verið rétt tilgreindar sé tryggt að skattstjóri hafi sömu heimild til endurákvörðunar á gjaldstofnum og álagningu og almennt er í hliðstæðum tilvikum. Telja verður eðlilegt að breyting sú sem frv. felur í sér nái fram að ganga.

Ég vænti þess að hv. þm. veiti frv. þessu brautargengi og legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.