08.12.1987
Neðri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (1177)

179. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég vil upplýsa að sá tölvuskjár sem hv. 3. þm. Reykv. minntist á er í smíðum en er ekki kominn hér

í borðið, en mun koma eftir nokkra daga. Vonandi verður það til þess einnig að hv. þm. mæti betur við atkvæðagreiðslur þegar forseti hefur það hér hverjir eru inni og hverjir ekki. En þar sem eigi eru nógu margir viðstaddir til að koma þessu máli áfram með eðlilegum hætti mun atkvæðagreiðslu verða frestað til morguns í þessu máli og málið tekið út af dagskrá.