09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1654 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)

Fjarvera ráðherra

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Forseti hefur gert ráðstafanir til að ná í framsögumann fyrir þessu máli, hæstv. viðskrh. Hann er í húsinu. Það liggur á að ljúka málum þrátt fyrir þessa fjarveru, sem mér þykir miður, og vænti ég þess að hv. deildarþm. uni við það í nokkrar mínútur eða þar til að hann kemur.