09.12.1987
Efri deild: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1655 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

Fjarvera ráðherra

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég vildi biðja hv. þingdeildarmenn afsökunar á því að ég var hér ekki staddur þegar til umræðu átti að taka frv. sem ég mæli fyrir. Ástæðan er ákaflega einföld. Ég er þingdeildarmaður í Nd. og var þar bundinn við þingstörf, kom hingað svo skjótt sem ég mátti og vonast nú til að geta bætt úr því sem unnt er úr að bæta, en segi ekki fleira um þetta.