09.12.1987
Neðri deild: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1692 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)

121. mál, Vísindaráð og Rannsóknaráð ríkisins

Frsm. menntmn. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti menntmn. á þskj. 211, áliti um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 48 frá 1987, um Vísindaráð og Vísindasjóð, Rannsóknaráð ríkisins og Rannsóknasjóð. Frv. er brbl. sem gefin voru út 14. apríl 1987. Nefndarmenn eru sammála um að mæla með samþykkt frv. Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson og Ragnar Arnalds.