10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1777 í B-deild Alþingistíðinda. (1330)

196. mál, söluskattur

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Það stendur auðvitað ekki annað til en taka málin mjög gaumgæfilega fyrir í nefnd og var sérstaklega rætt um það á fundi fjh.- og viðskn. í morgun hvernig þau vinnubrögð yrðu og ég veit ekki betur en fullt samkomulag sé um það.