10.12.1987
Efri deild: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1792 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

196. mál, söluskattur

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Ég vil í tilefni af þessu segja það, sem fram kom reyndar áðan, að mælt verður fyrir hverju máli fyrir sig líkt og skylt er. Það náðist samkomulag um það í dag að halda fundum áfram hér. Ég get ekki séð að það samkomulag hafi neitt breyst. Það verður fundahlé núna milli kl. 7 og 9 og hygg ég að það sé ástæða til að nota þann tíma til samráðsfunda auk matarhlés.