10.12.1987
Neðri deild: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1897 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)

70. mál, Norræni fjárfestingarbankinn

(Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur haft frv. til athugunar. Hún telur æskilegt að veita þessa heimild til að auka hlutafé Íslands í Norræna fjárfestingarbankanum og mælir því með að frv. verði samþykkt.