12.12.1987
Neðri deild: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2015 í B-deild Alþingistíðinda. (1470)
47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Forseti (Jón Kristjánsson):
Þess skal getið vegna orða síðasta ræðumanns að það hefur verið rætt um að ljúka þessu máli í dag og gefa hv. þm. góðan tíma til umræðu um það þannig að ef þess þarf verður haldinn kvöldfundur í þessari hv. deild. En mælendaskrá er ekki löng í þessu máli þannig að það er ekki séð, ef ræðulengd er með venjulegum hætti, að þurfi kvöldfund. En ef raðast á mælendaskrá og sýnt er að umræðum ljúki ekki fyrir kvöldmat verður haldinn kvöldfundur, en eins og er er ekki sýnt að þess þurfi.