15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2187 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

1. mál, fjárlög 1988

Egill Jónsson:

Herra forseti. Það getur á engan hátt talist rökleysa að skýra frá því að mál séu til umfjöllunar í fjvn. og með því að málefni Íþróttasambands Íslands hafa ekki enn þá verið afgreidd frá nefndinni segi ég nei.