15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2188 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

1. mál, fjárlög 1988

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Það framlag sem hér er boðið upp á að veita til Þróunarsamvinnustofnunar er auðvitað langt fyrir neðan það sem hið háa Alþingi hefur samþykkt að veita á ári hverju, en þar sem um nokkra hækkun er að ræða frá upphaflegri áætlun mun ég segja já.