15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ekki í gær en í fyrradag viðhafði ég þau ummæli um hæstv. félmrh. sem hv. 13. þm. Reykv. nefndi áðan. Ef það er talið móðgandi að biðja konur um að prjóna eða sauma heima hjá sér bið ég afsökunar á því hvaða starf sem hún kann að hafa í þjóðfélaginu að öðru leyti. Ef ég hef móðgað félmrh. segir hún til um það sjálf, en ef svo er bið ég hana hér með innilega afsökunar á því. Það var ekki tilgangurinn.