15.12.1987
Sameinað þing: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)
1. mál, fjárlög 1988
Níels Árni Lund:
Herra forseti. Í ljósi þess gífurlega misréttis sem dagblöðin búa við af hálfu ríkisins hvað varðar birtingu auglýsinga og er í reynd ríkisstyrkur hinn mesti tel ég eðlilegt að reynt sé að leiðrétta þetta m.a. með því að ríkið kaupi jafnmörg eintök af dagblöðunum. Því segi ég já.