15.12.1987
Efri deild: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)

47. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Ég vil að gefnu tilefni minnast á að það hefur skeð áður á þessu þingi að þm. hafa rætt brtt. við 1. umr. Mér hefur verið bent á víða að það sé ósiður hinn mesti. Ég hef reyndar látið það viðgangast til að halda friðinn, en ég vænti þess að hv. þm. geri sér grein fyrir því að reiknað er með að brtt. séu ræddar við 2. umr.