15.12.1987
Neðri deild: 25. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (1610)

186. mál, fréttaflutningur Ríkisútvarpsins um utanríkismál

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég hef ritað undir nál. fjh.- og viðskn. með fyrirvara sem lýtur í raun sameiginlega að allri gildistöku og kerfisbreytingu sem snertir upptöku staðgreiðslu á opinberum gjöldum um næstkomandi áramót. Og þar sem fyrirvarinn lýtur efnislega meira að þeim frv. sem á eftir fylgja, annars vegar því sem mælt verður væntanlega fyrir hér á eftir og hins vegar frv. sem hv. fjh.- og viðskn. vinnur enn með mun ég gera nánar grein fyrir honum í umræðum um það mál.