18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (1861)

180. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Frsm. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur farið yfir þetta frv. og er sammála um að mæla með samþykki þess. Hv. þm. Svavar Gestsson skrifar undir með fyrirvara og hv. 6. þm. Reykv., sem setið hefur fundi nefndarinnar, er einnig samþykk þessu máli, en lýsir þó samsvarandi fyrirvara og hv. 7. þm. Reykv. sem ég hygg að sé fremur um vinnubrögð en efni málsins, varðar kynninguna en ekki beint efni frv.