18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2543 í B-deild Alþingistíðinda. (1946)

Uppprentun þingskjala

Forseti (Jón Kristjánsson):

Vegna þessarar umræðu sem hér fer fram vil ég geta þess að sá starfsmaður þingsins sem var að verki í þessu tilfelli hefur upplýst mig um að lýsing hv. 17. þm. Reykv. á viðskiptum þeirra sé rétt, en að sjálfsögðu verður orðið við því að athuga hvort hér er um efnislega breytingu að ræða og það mun verða gert.