19.12.1987
Efri deild: 33. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2687 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)
196. mál, söluskattur
Svavar Gestsson:
Hæstv. forseti. Auðvitað er ljóst að ýmsir þættir í þessu frv. eru með þeim hætti að ég fyrir mitt leyti hefði talið eðlilegt að þeir yrðu samþykktir og gengju í gegn. Ég tel hins vegar óhjákvæmilegt, vegna þess að hér er um að ræða skatta á matvörur, skatta á brýnustu lífsnauðsynjar alþýðuheimilanna í landinu, að láta það koma fram hér, þegar atkvæði eru greidd um þetta frv. í heild, að ég er andvígur matarskattinum og segi því nei.