21.12.1987
Efri deild: 35. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2920 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)
181. mál, stjórn fiskveiða
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég hef ekkert talað í deildinni í dag um það mál sem hér hefur verið til umræðu og hef þar af leiðandi ekkert gert til að tefja það mál. En ég held að við þurfum að gera okkur grein fyrir því að það erum ekki bara við sem erum að vinna í þessu húsi. Hér vinnur starfsfólk þingsins, sem hefur verið undir óvanalega miklu vinnuálagi undanfarna daga og vikur, og mig langar bara að bera fram þá spurningu: Ætla menn að láta nótt og dag ná saman á þessum sólarhring? Ætla menn að hefja fjárlagaumræðu á morgun? Ætla menn að hefja fundi snemma morguns? Ætla menn að vera langt fram á kvöld? Ætla menn að mæta þeim veðrum, sem Veðurstofan hefur spáð, norðaustanátt með éljagangi norðanlands? Ætla menn heim fyrir jól?
Ég held við þurfum að vera raunsæ um hverju við fáum áorkað á þeim stutta tíma sem lifir til jóla. Við verðum að fara að velja og hafna.