22.12.1987
Efri deild: 36. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3011 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)

181. mál, stjórn fiskveiða

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Með tilliti til þess að brtt. Alþb. við frv. þetta hefur verið hafnað, með tilliti til þess að ekki hefur verið tekið neitt tillit til almennra ábendinga okkar og vegna málsmeðferðar og stöðu þessara mála í þinginu nú segi ég nei.