22.12.1987
Neðri deild: 37. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3142 í B-deild Alþingistíðinda. (2212)

Vinnuálag á Alþingi

Forseti (Jón Kristjánsson):

Þeirri fsp. sem beint var til mín svara ég með þeim orðum að að sjálfsögðu ber ég ekki ábyrgð á fundahöldum í Ed. Til fundar í þessari deild er boðað eftir að menn hafa fengið allnokkurn svefn því hér lauk fundi kl. 2 í nótt. Það er ekki óvenjulegt á þessum tíma þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu að fundur geti haldið áfram í þessari hv. deild.