22.12.1987
Neðri deild: 37. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3143 í B-deild Alþingistíðinda. (2215)
Vinnuálag á Alþingi
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég tek mjög eindregið undir orð hv. 5. þm. Reykv. Mér blöskrar gjörsamlega að stjórn þingsins skuli láta viðgangast þessi vinnubrögð og það vinnulag sem viðhaft er hérna í þinginu og sem ég held að hljóti að teljast hreinlega brot á vinnulöggjöfinni og þá er ég fyrst og fremst að hugsa um starfsfólk þingsins en ekkert síður um hv. þm. Ég tel það fremur ómaklegt af hæstv. forseta að vega að þm. fyrir að nota málfrelsi sitt. Ég fer fram á það við hæstv. forseta, sem er hluti af stjórn þingsins, að hann hlutist til um að það verði haldinn fundur forseta um áframhaldandi störf hér í dag.