22.12.1987
Neðri deild: 37. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3159 í B-deild Alþingistíðinda. (2227)

Jólakveðjur í neðri deild

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Fyrir hönd okkar alþm. þakka ég hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur og fjölskyldum okkar til handa. Ég þakka honum sanngjarna fundarstjórn og ágæta forustu um þingstörfin. Fyrir hönd okkar allra óska ég honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þá vil ég einnig þakka skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis öllu vel unnin störf, óska því og fjölskyldum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og leyfi mér að vænta þess að við megum öll hittast heil til starfa á ný að loknu þinghléi. Ég vil biðja hv. alþm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]