22.12.1987
Sameinað þing: 37. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3200 í B-deild Alþingistíðinda. (2242)

Jólakveðjur í sameinuðu Alþingi

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar alþm. þakka ég hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég þakka honum líka fyrir sanngjarna fundarstjórn og ágæta forustu um þingstörfin nú sem endranær.

Ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og ég vil jafnframt leyfa mér fyrir hönd okkar alþm. að þakka skrifstofustjóra og starfsfólki þingsins öllu fyrir ómetanleg störf og aðstoð við okkur í miklum önnum undanfarið. Ég vil leyfa mér að vænta þess að við megum öll hittast heil til starfa á ný að loknum jólum.

Ég vil biðja hv. alþm. um að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]