28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3202 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)

1. mál, fjárlög 1988

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég er andvíg því að það hús, sem hér um ræðir, verði reist á þeim stað sem því er ætlað og ég tel að húsnæðisvanda Alþingis sé unnt og æskilegt að leysa með öðrum hætti. Ég segi nei.