28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3202 í B-deild Alþingistíðinda. (2248)

1. mál, fjárlög 1988

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins ítreka það sem kom fram í framsögu minni með þessari till. Þarna er um það að ræða að ljúka hönnun umrædds húsnæðis þannig að skipulagsyfirvöld borgarinnar geti tekið ákvörðun um hvort þau fallast á þessar byggingarframkvæmdir og í framhaldi af því getur þingið síðan tekið ákvörðun um hvort það óskar að reisa húsið. Ég ítreka þessa umsögn mína og segi já.