28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3202 í B-deild Alþingistíðinda. (2252)

1. mál, fjárlög 1988

Hreggviður Jónsson:

Hæstv. forseti. Sú bygging, sem hér er verið að greiða atkvæði um, er þegar búin að kosta töluvert fé. Ég tel að hún fari bæði illa í þessu umhverfi og verði allt of kostnaðarsöm og það verði hægt að leysa húsnæðismál Alþingis á ódýrari og betri hátt. Ég segi nei.