28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3203 í B-deild Alþingistíðinda. (2256)

1. mál, fjárlög 1988

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Þessi brtt. lýtur að hækkun á framlagi til Lánasjóðs ísl. námsmanna um 200 millj. kr. Sú hækkun mun láta nærri til að duga þannig að af megi taka þá skerðingu sem hæstv. fyrrv. menntmrh. Sjálfstfl. hafa gripið til og hæstv. núv. menntmrh. hyggst viðhalda. Sú skerðing nemur nálægt 20% á lánum til námsmanna. Þessi hækkun mundi eins og áður sagði duga til að afnema þá skerðingu sem engin rök eru fyrir ég er í raun andstæð anda laga um námslán og námsstyrki. Ég segi já.