28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3204 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

1. mál, fjárlög 1988

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég tel það sérstaklega ljótan blett á fjárveitingavaldinu að stuðningur við nemendur sem stunda framhaldsnám fjarri heimabyggð sinni skuli hafa minnkað óðfluga ár frá ári vegna þess að hann er svo til sama krónutala ár frá ári. Ég tel þetta algerlega óviðeigandi og til skammar og segi já við þessari tillögu.