28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3206 í B-deild Alþingistíðinda. (2268)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Það er hörmulegt til þess að vita að áhrifamestu menn í ríkisstjórn lýsa yfir stuðningi við íþróttir og vitna í að örlítið hafi verið hækkað framlag af fjvn. frá því að fjárlagafrv. var kynnt í upphafi. En þar sem framlagið eins og það lítur nú út hækkað á fjárlögum nær ekki þeirri upphæð sem var á síðasta árs fjárlögum segi ég já.