28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3206 í B-deild Alþingistíðinda. (2270)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Um leið og ég geri grein fyrir atkvæði mínu vil ég draga athygli að því að það kostar líklega um 1000 millj. að reka íþróttahreyfinguna á Íslandi næsta ár. Hér er verið að greiða atkvæði um hvort styrkurinn á að vera 27 millj. rekstrarstyrkur eða ekki sem þó er þó nokkuð lægri styrkur en var á fjárlögum sl. ár. Ég harma að afstaða Alþingis skuli vera svo neikvæð til íþróttahreyfingarinnar. Ég segi já.