28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3207 í B-deild Alþingistíðinda. (2272)

1. mál, fjárlög 1988

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Svo sem fram hefur komið hefur íþróttahreyfingin fyrir atbeina Alþingis nú rýmri fjárráð en nokkru sinni fyrr og þrátt fyrir ummæli hv. 5. þm. Reykv., formanns Borgarafl. og fyrrv. fjmrh., held ég að fjárhagslega standi hagur íþróttahreyfingarinnar nú með meiri blóma en meðan sá hv. þm. gegndi embætti fjmrh. Ég segi því nei.