28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3208 í B-deild Alþingistíðinda. (2278)

1. mál, fjárlög 1988

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Tillaga þessi fjallar um stuðning við fræsöfnun og frædreifingu til endurheimtu birkiskóga. Þetta er stórmerkilegt framtak sem byggir á sjálfboðaliðastarfi tugþúsunda manna um allt land og þetta starf þarfnast stuðnings okkar. Þess vegna er þessi tillaga flutt. Ég segi já.