28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3213 í B-deild Alþingistíðinda. (2296)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég tel að hv. fjvn. fari rétt að að koma í veg fyrir að mistök eigi sér stað ef þau eru sjáanleg að mati fjvn. Ég fagna því að fjvn. hefur komið sér saman um að flytja frv. til að fá heimild Alþingis til að selja eignina Síðumúla 34 í Reykjavík, en ég óska eftir því að það frv. komi ekki fram fyrr en kaupandi er fundinn og fyrir liggja skilmálar fyrir sölunni.