22.10.1987
Sameinað þing: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

3. mál, bann við geimvopnum

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Í tilefni af orðum frsm. þessarar þáltill. get ég að sjálfsögðu ítrekað það, sem áður hefur komið fram, að Alþfl. er andvígur hervæðingu geimsins. Hitt er svo aftur álitamál hvernig best verði unnið að því markmiði. Og við höfum ekki verið sannfærðir um, það er rétt hjá hv. flm., að einmitt sú leið sem fólst í samþykkt þeirrar þáltill. sem hér um ræðir væri hin rétta eða hin raunhæfasta. Þannig hafa málin staðið og þannig standa þau.